Megi ljótleikinn sigra!

Líkt og með aðrar hugmyndasamkeppnir á vegum Reykjavíkurborgar mun þessi eflaust enda með því að ljótasta og minnst framsæknasta tillagan mun vinna. 

Aðrar hugmyndasamkeppnir:

Ég er ekki frá því að það hafi jafnvel verið fleiri Hugmyndasamkeppnir um skipulag Vatnsmýrarinnar, en en ég nenni ekki að finna fleiri í bili. Tvær eru alveg nóg. 

Ef krafist er frekari dæma um asnalegan íslenskan arkitektúr (eða etv. arkitekta), þá eru nærtæk dæmi:

  • Askja, nýjasta bygging Háskóla Íslands
    • Bognar kennslustofur, ef þú situr á 'réttum' stað sérðu ekki á hluta töflunnar
    • Opið frá kaffiaðstöðu í lestrarými, lagað með háværustu hurðum í heimi
    •  Engin leið að loka fyrir glugga, þegar sól skín hvað mest er heitara en í helvíti
  • Barnaspítali við Hringbraut
    • Einn langur gangur og fjórar stofur á sitthvorum enda, góð nýting á dýru plássi...
    • Börnum bannað að hengja upp myndir á veggina, látum veikum börnum endilega líða sem minnst velkomin
  • Viðbygging við Alþingishúsið
    • Stál, gler, viður og steinn fara saman eins og ... tja, stál, gler, viður og steinn...

Ég er tala örugglega ekki fyrir alla, persónulega finnst mér háar byggingar fínar, ég fyllist alltaf lotningu þegar ég kem til stórborga eins og New York þar sem eru glæsileg risaháhýsi, ekki bara 12 hæða klumpar innan um bárujárns drauga eins og hérna heima. Mörgum svíður eflaust þessi orð, ef einhver tekur mig svo alvarlega, en stundum geta mannvirki verið falleg. Þetta er staðreynd sem eflaust erfitt er að taka trúanlega hérna á klakanum, þar sem náttúran fer öllu framar svo lengi sem hún er sjáanleg (hverjum er ekki sama um botnveiðar??). 

Svarið sem brennur á vörum einhverra er örugglega "flyttu þá bara til New York", þetta segir mamma allavega alltaf þegar ég minnist á eitthvað slæmt við Reykjavík eða Ísland almennt. Rétt er það, ein lausnin fyrir mig er að flytjast úr landi, en hvar á ég þá að hengja "heima er bezt" útsaumsmyndina mína??


mbl.is Hugmyndasamkeppni um skipulag Vatnsmýrar hafin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skilst að sama vandamál komi upp í FSu á Selfossi og með Öskju þegar hlýnar í veðri .. og svo verður álíka kalt og á Norðurpólnum þgar það er kalt

a (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 00:13

2 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Skrifa frá Manhattan og tel best að ekki byggja of hátt í Reykjavík. Önnur mikilvægari skipulagsmál þurfa að hafa forgang.

Bestu kveðjur

v

Ólafur Þórðarson, 30.3.2007 kl. 04:17

3 identicon

Sammála þér varðandi moderníska stílinn hér á íslandi, hann er fáránlegur. Annars eru bárujárnshúsin mjög falleg. 

Viðar Guðjohnsen (IP-tala skráð) 1.4.2007 kl. 01:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband